ÍBV treyjur David James á uppboði
David James, fyrrum aðstoðarþjálfari og markvörður ÍBV var fyrir nokkrum misserum úrskurðaður gjaldþrota. James, sem lék um árabil með enska landsliðinu, Liverpool, Manchester City, Portsmouth og fleiri félögum, hefur sankað að sér mörgum fótboltatreyjum, sem nú eru boðnar upp, væntanlega til að fá upp í skuldir. �?ar má m.a. finna fjórar ÍBV-treyjur en þetta kemur fram á mbl.is en treyjurnar sem boðnar eru upp, koma víðs vegar að, m.a. frá Havnar Boltafélagi og Rauðu Stjörnunni sem ÍBV lék gegn í Evrópukeppninni og Reyni Sandgerði. �??James, sem er fyrr­ver­andi landsliðsmarkvörður Eng­lands, lék á ferl­in­um meðal ann­ars með Li­verpool, Ast­on Villa, West Ham, Manchester City og Ports­mouth í ensku úr­vals­deild­inni, og varði svo mark ÍBV í fyrra­sum­ar,�?? segir í fréttinni.
Stuðningsmönnum ÍBV gefst því tækifæri til að eignast treyju þekktasta leikmanns sem spilað hefur fyrir félagið, og reyndar í íslenska boltanum ef út í það er farið. Hægt er að bjóða í treyjurnar H�?R en uppboðið stendur frá og með deginum í dag og til 18. nóvember. ÍBV treyjurnar eru númer 50-52 og 195.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.