Júníus Meyvant í beinni frá Kex hostel í dag kl. 16
�?essa dagana er í fullum gangi, í höfuðborginni, hin árlega tónlistahátíð Iceland Airwaves. �?ar kemur meðal annars fram Eyjamaðurinn Unnar Gísli Sigurmundsson betur þekktur sem Júníus Meyvant. Við heyrðum í honum á dögunum og var þá kominn í hann töluverður spenningur. �??�?etta verður í fyrsta sinn sem ég spila þessi lög live með bandi, þannig að það er þó nokkur spenningur kominn í mann.” Júníus Meyvant kom fram tvisvar í gær miðvikudag, í Gamla Bíói og á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund. Hann kemur svo fram í dag kl. 16.00 á Kex hostel sem er einn af svo kölluðum “off-venue” stöðum. En þaðan sendir Bandaríska útvarpsstöðin KEXP út alla hátíðina bæði hljóð og mynd og má því sjá og hlýða á Unnar Gísla og félaga á slóðinni kexp.org/video/live í dag kl. 16. �?egar við heyrðum í Unnari á dögunum var hann einmitt ný kominn frá Seattle þar sem hann heimsótti umrædda útvarpsstöð. Afraksturinn af því má m.a. sjá í spilaranum hér að ofan.
Júníus Meyvant kemur svo aftur fram á “off-venue” viðburði á föstudaginn kl. 17 á The Laundromat Café og í Landsbankanum, Austurstræti á laugardaginn kl. 15. Hann endar þetta svo á tónleikum í Norðurljósasal Hörpu á kl. 21.00 sama dag en þar er hann með alla hljómsveitina með sér. �??�?að verða þrír blásarar með mér með baritónsax, básúnu og trompet svo verður ein fiðla. Reyndar spilar barítónleikarinn einnig á fiðlu þannig að ég get líka haft tvær fiðlur. Síðan verð ég með tvo bræður mína með mér á sviði, þá Guðmund �?skar og �?laf Rúnar. �?riðji bróðirinn, Einar, er því miður í Vestmannaeyjum núna þannig að ég get ekki misnotað hann, annars væri hann pottþétt með líka.�?? Unnar Gísli er sonur hjónanna Sigurmundar Gísla Einarssonar og Unnar �?lafsdóttur og hefur því, eðli málsins samkvæmt, verið mikil tónlist á heimilinu.
�?landameikið togar
Unnar Gísli segist mest hafa verið í upptökum að undanförnu en er svo á leiðinni til Hollands í janúar þar sem hann spilar á Eurosonic Noorderslag sem er mikill tengslamyndunarvettvangur fyrir evrópska tónlistarbransann og hefur tekið þátt í að kynna nýja upprennandi tónlistarmenn fyrir tónlistarheiminum þar. Íslensk tónlistaratriði sem leikið hafa á hátíðinni hafa mörg fengið fjölda bókana á tónlistarhátíðir og tengsl við lykilaðila sem hjálpa við að koma atriðunum á framfæri. Uppselt er á hátíðin á hverju ári, og hana sækja 3.200 fulltrúar úr tónlistarbransanum, 33.000 gestir, 300 tónlistaratriði og samhliða tónlistarhátíðinni er rekin tónlistarráðstefna með 150 pallborðsumræðum, fyrirlestrum, viðtölum, vinnustofum, partíum og fundum. En Ísland verður fókusþjóð þar þetta árið. �?etta er því mikið tækifæri til frekari frama erlendis, en er það eitthvað sem togar í okkar mann?
�??Já, markaðurinn er náttúrulega mikið stærri heldur en hérlendis og það er mikið �??hæp�?? fyrir íslenskri tónlist í augnablikinu. Sérstaklega þegar þú syngur á ensku. Enskan er einhvern veginn bara auðveldari viðureignar heldur en íslenskan. Hún er svo rík af orðum að þú getur nánast bullað bara eitthvað og það hefst. �?g á samt pottþétt eftir að gera eitthvað á íslensku einhverntímann. �?að þarf bara að vera svo rosalega vel gert til þess að mér finnist það virka. Hún er erfið íslenska tungan.�??
Fyrsta lagið sem Júníus Meyvant sendi frá sér, Color decay, kom út í maí og fékk gríðarlega góðar viðtökur hér á landi og rauk beint á topp vinsældarlista útvarpsstöðvanna. Einnig hefur það verið spilað töluvert erlendis. �??�?g hef fengið spilun hér og þar út í heimi. �?að er alltaf einhver að senda mér skilaboð um að hafa heyrt í mér í útvarpinu til að mynda í Californiu, Texas og víðar. �?annig að þetta er svona að dreifast hægt og bítandi. En svo fer þetta náttúrulega ekkert almennilega af stað fyrr en maður fer út og fylgir þessu eftir og er mikill þrýstingur frá umboðsmanni mínum að gera það.�??
Plata í byrjun árs
En hvenær er von á nýju efni?
�??�?að er eitthvað meira á leiðinni og ætti að koma út núna í kringum Airwaves. En þetta er alltaf basl þegar maður er svona �??soundperri�?? eins og ég er. Maður er hálf hugsjúkur og geðveikur í stúdíóinu og er í rauninni aldrei ánægður en verð á endanum sáttur og verð bara stoppa þar. Gott er bara ekki nóg, þetta verður að vera frábært. Annars er ég búinn að taka upp grunna að einum ellefu lögum og reikna ég með að gefa út tíu til tólf laga plötu í byrjun næsta árs.�??
Fyrir þá sem ekki geta beðið eftir plötunni þurfa ekki að örvænta því Unnar Gísli kemur til með að flytja megnið af þessum lögum á Iceland Airwaves.
Hvenær má svo búast við tónleikum í Vestmannaeyjum?
�??Vonandi bara sem fyrst, það væri gaman að gera eitthvað í desember. Trommarinn minn er að fara til Kúbu núna strax eftir Airwaves að læra betur á kóngur og kemur aftur í byrjun desember. �?g myndi þá vilja gera eitthvað flott úti í Eyjum,�?? sagði Unnar Gísli að lokum og grínast með aðspurður hvort hann fái ekki bara foreldrana með sér. �??The Simmsons,�?? segir hann og hlær.
�?arna er bráðefnilegur tónlistarmaður á ferðinni sem vert er að fylgjast með og hvet ég fólk til að gera sér ferð á tónleika hans ef þeir mögulega geta. Einnig er hægt að hlýða á tvö laga hans í sérstakri Airwaves upphitun á vef Landsbankans á landsbankinn.is/icelandairwaves/.

Nýjustu fréttir

Þóra Guðný og Sveinn flutt í nýja húsið
ÍBV mætir KR á Meistaravöllum í kvöld
Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.