Breskur veltiuggasérfræðingur væntanlegur í dag
Farþegar Herjólfs hafa orðið þess varir undanfarið að svokallaðir veltiuggar skipsins, sem draga úr veltingi þess, hafa ekki virkað sem skyldi. Reyndar eru uggarnir sjálfir ekki vandamálið heldur rafvæddur stjórnbúnaður þeirra. Búnaðurinn stóðst skoðun þegar unnið var að viðhaldi Herjólfs í Svíþjóð nýlega en hann bilaði stuttu síðar. Undanfarna daga hefur verið skipt um rafmagnsskápa ásamt því sem raflagnir þessa margþætta kerfis sem Eyjamenn nefna einu orði �??veltiugga�?? hafa verið yfirfarnar.
Breskur sérfræðingur er væntanlegur til Vestmannaeyja í dag til að yfirfara kerfið en nú er verið að skipta út síðasta rafmagnskassanum af 16 sem endurnýja þurfti í stýrikerfii veltiugganna. Steingrímur �??Steisi�?? Svavarsson, rafvirki í Geisla, hefur haft yfirumsjón með verkinu. Hann segir í samtali við Eyjafréttir.is að það hafi gengið betur en búist var við í upphafi, þar sem ekki hafi þurft að endurnýja margar raflagnir. �??�?g þurfti að bæta við tveimur köplum, hvor um sig var 5 metra langur, það er vel sloppið,�?? segir Steingrímur.
-SJ

Nýjustu fréttir

Júníus Meyvant með tónleika í Alþýðuhúsinu
Fyrsti leikurinn undir stjórn Bergvins
Loppumarkaður á Heiðarvegi um helgina
Opna fjöldahjálparstöð í Arnardrangi á laugardag
Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi – Samfylkingin styrkir stöðu sína
Staðfesta synjun á gagnabeiðni Eyjafrétta
Leggja til tvöfalt meiri makrílveiði á næsta ári
Góður afli en erfiðlega gekk að finna ýsu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.