Ríkharður kveður Húsasmiðjuna
Ríkharður Hrafnkelsson, rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar í Vestmannaeyjum er hættur störfum og ætlar á samt eiginkonu sinni að flytja á sínar heimaslóðir, Stykkishólm. Á facebooksíðu sinni segir Ríkharður:
�??Á morgun (gamlársdag) verður minn síðasti vinnudagur hjá Húsasmiðjunni í Vestmannaeyjum eftir tæplega sex ára starf sem rekstrarstjóri. �?g kveð afar góðan vinnustað og frábært samstarfsfólk, horfi yfir stöðuna á kveðju stund með stolti í brjósti. Samstarfsfólkið sem ég kveð á morgun mun örugglega halda merki Húsasmiðjunnar og Blómavals hér í Eyjum hátt á lofti Eyjamönnum til heilla, enda frábærir starfsmenn. Að áramótunum afstöðnum mun ég hefja störf sem launa- og bókhalsfulltrúi hjá Stykkishólmsbæ, mínum gamla heimabæ. Væntanlega um mánaðarmótin janúar febrúar munum við hjónin Karín Herta Hafsteinsdóttir svo flytja búferlum í Hólminn. �?að er mikil tilhlökkun að flytja aftur til baka og taka við spennandi starfi ásamt því að komast nær fólkinu sínu. �?rátt fyrir tilhlökkunina þá verður mikil eftirsjá að mörgu hér í Eyjum, samstarfsfólkinu, viðskiptavinunum, golffélögunum, Kiwanisfélögunum og öllum hinum vinunum. Við erum að yfirgefa afar gott samfélag í Eyjum og munum örugglega koma oft í heimsókn, sérstaklega yfir sumarmánuðina þegar golfvöllurinn, fegurstur allra golfvalla, skartar sínu fegursta.”
Á myndinni er Ríkharður ásamt starfsfólki sínu.

Nýjustu fréttir

Enn að eftir 40 ár sem blaðamaður
Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.