Í tilefni 100 ára frá því konur fengu kosningarétt
Sagnheimar, byggðasafn, ætlar að minnast þess á margvíslegan hátt að í ár eru liðin 100 ár frá því að konur fengu kosningarétt hér á landi. Hafinn er undirbúningur á nýrri íþróttasýningu þar sem Eyjakonur í íþróttum verða nær eingöngu viðfangsefnið. Aldrei verður hægt að gera öllum skil – en nú kalla ég eftir tillögum ykkar hverjar ykkur finnst að eigi endilega að vera með…??? �?ið getið annað hvort skrifað nöfnin hér að neðan í athugasemdum eða sent mér netpóst á helga@sagnheimar.is.
Hér fylgir skemmtileg mynd af íþróttakonum úr ljósmyndasafni safnsins af fimleikaflokki KV. Ekki er vitað hvenær hún var tekin, en á henni eru: Aftari röð: Ásta Guðmundsdóttir frá Heiðardal, Ása Torfadóttir frá Áshól, Lóa Ágústsdóttir Baldurshaga, Auður Guðmundsdóttir frá Hrafnagili, Björg Sigurjónsdóttir Víðidal, Guðbjörg Gunnlaugsdóttir frá Gjábakka og Ingibjörg Guðmundsdóttir frá Viðey. Fremri röð frá vinstri: Guðný Gísladóttir, Jón Magnússon íþróttakennari og Selma Einarsdóttir frá London.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.