Jón Gunnlaugur Viggósson annar þjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍBV mun ekki halda áfram með liðið á næstu leiktíð. Jón Gunnlaugur hefur þjálfað ÍBV síðastliðin tvö ár ásamt Svavari Vignissyni. Jón Gunnlaugur hefur ákveðið að snúa sér aftur að þjálfun í karlahandboltanum en hann þjálfaði þar í sex ár áður en hann snéri sér að kvennaboltanum þar sem hann hefur verið síðastliðinn fimm ár. Jón Gunnlaugur og Svavar hafa einnig þjálfað unglingaflokk kvenna með frábærum árangri en þær eru ríkjandi bikar-og deildarmeistarar og ósigraðar í yfir tuttugu leikjum.