Gríðarleg aukning í útflutningi ferskra flaka og flakabita á 20 árum
Ein stærsta og verðmætasta breytingin í útflutningi síðustu 10-20 árin er hin mikla aukning í framleiðslu ferskra flaka og flakabita. Frá 1997 hefur útflutningur þessara afurða nærri fjórfaldast í tonnum talið frá því að vera um 9.000 tonn í tæp 34.000 tonn árið 2013 og það sem meira er að útflutningurinn er nú í mun meira mæli með skipum en áður.
Kældur fiskur.
�?etta kemur fram í frétt frá Matís. �?ar segir að árið 2000 voru flutt út rúm 500 tonn af ferskum flökum með skipum en nú er þessi tala fyrir 2013 ríflega 15.000 tonn, eða rétt tæpur helmingur útflutningsins.
�??Breytingar af þessari stærðargráðu eiga sér ekki stað nema margt komi til og við sem erum að rannsaka af hverju, hvers vegna og hvernig breytingar hafa áhrif erum alveg sannfærð um að rannsókna- og þróunarverkefni undanfarinna ára hafa haft töluvert að segja um þennan árangur.
Í samstarfi við útvegs- framleiðslu- og flutningsfyrirtæki hefur orðið til mikil þekking og kunnátta um hvernig best er að meðhöndla ferskt sjávarfang og viðhalda gæðum. �?að má heldur ekki gleyma gildi námskeiða um bætta meðferð afla eða öðru fræðsluefni,�?? segir í fréttinni. Fiskvinnsluhúsin í Vestmannaeyjum eiga sinn hlut í meiri útflutningi á flökum og fiskbitum.

Nýjustu fréttir

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar síðdegis
Dýpkuðu 32 þúsund rúmmetra við Landeyjahöfn
Logn og bros á Stórhöfða
Slökkviliðsstjóri söðlar um eftir tíu ár í starfi
Útlit fyrir breyttar siglingar Herjólfs næstu daga
Skjöldur haldinn í þriðja sinn
Erlingur til GWD Minden – Bergvin tekur við sem aðalþjálfari ÍBV
Heimir fagnaði 3-0 sigri gegn Ísrael
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.