�??Stjórn Sparisjóðs Vestmannaeyja (SV) leitar nú allra leiða til að auka eigið fé sjóðsins um 1.200 milljónir króna en athugun á útlánasafni hans, sem ráðist var í undir lok árs 2014, leiddi í ljós að raunverulegt eiginfjárhlutfall sjóðsins er undir því lágmarki sem Fjármálaeftirlitið hefur sett. Sjóðurinn hefur frest til síðdegis á föstudaginn til að bæta úr stöðunni en að öðrum kosti mun FME grípa til aðgerða og skipa skilanefnd yfir sjóðinn,�??segir í frétt Viðskiptablaðs Morgunblaðsins í morgun.
Vilhjálmur Egilsson, varaformaður stjórnar SV, segir að vandinn sé mikill en að stjórnin telji sig geta leyst úr honum innan þess frests sem gefinn var. �??Auðvitað finnst okkur fresturinn styttri en æskilegt væri en við höfum fulla trú á því að lausn verði komin fyrir lok dags á föstudag, en málið er í góðum farvegi. Um leið og stjórnin gerði sér grein fyrir því að útlánasafnið var mun veikara en áður var talið var gripið til aðgerða og Fjármálaeftirlitinu gert viðvart.�??
�??Síðan þá hefur verið unnið með FME að úrlausn málsins. �?tlánasafn Sparisjóðsins er bókfært í hálfsársuppgjöri hans fyrir árið 2014 á rétt rúma 8 milljarða króna. �??�?að er fyrst og fremst útlánasafnið frá Selfossi sem ekki hefur reynst jafn gott og áður var talið. Svo virðist vera sem safnið hafi verið ofmetið þegar sjóðurinn gekk í gegnum endurskipulagningu árið 2010,�?? segir Vilhjálmur. Vilhjálmur segir stefnt að því að breyta víkjandi lánum að fjárhæð 400 milljónir í eigið fé, 600 milljónir komi með nýju eiginfjárframlagi og 200 milljónir verði sóttar með víkjandi lánum sem teljist með þegar eiginfjárgrunnur sjóðsins er metinn.
�?á segist hann geta fullyrt að engin innlán séu í hættu. Sparisjóður Vestmannaeyja er að stærstum hluta í eigu ríkisins en Bankasýsla ríkisins fer með eignarhlutinn fyrir þess hönd. Eignarhlutur þess er til kominn vegna stofnfjárframlags upp á 555 milljónir króna sem lagt var fram til bjargar sjóðnum í kjölfar þeirra erfiðleika sem mynduðust í árslok 2008. Aðrir stórir stofnfjáreigendur eru Lífeyrissjóður Vestmannaeyja með 14,3%, Vestmannaeyjabær með 10,2%, Vinnslustöðin 5% og Tryggingasjóður sparisjóða 2,8%. �?essir aðilar komu inn í rekstur sjóðsins á sama tíma og ríkissjóður en fram til ársins 2007 voru stofnfjáreigendur aðeins einstaklingar í Vestmannaeyjum. Frá þeim tíma tók stofnfjárskráin nokkuð að riðlast og hlutir að færast á færri hendur,�?? segir í fréttinni.