�??Stjórnin fékk vitneskju um mikið útlánatap á stjórnarfundi 19. mars sl. en þá mætti endurskoðandi á fund stjórnar og fór yfir málið,�?? sagði Hafsteinn Gunnarsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Vestmannaeyja þegar hann var spurður um stöðuna hjá sjóðnum. Eins og komið hefur fram leitar stjórnin nú allra leiða til að auka eigið fé sjóðsins um 1200 milljónir króna. Sjóðurinn hefur frest til síðdegis á morgun til að bæta úr stöðunni að öðrum kosti mun FME grípa til aðgerða og skipa skilanefnd yfir sjóðinn.
�??Við erum að vinna eftir aðgerðaáætlun sem lögð var fyrir FME og samkvæmt henni á að vera hægt að bjarga sjóðnum. Ef við náum að ljúka aðgerðaáætlun og ná í það nýja stofnfé sem hún gerir ráð fyrir þá á rekstrargrundvöllur sjóðsins að vera tryggður til framtíðar.�??
Geta sparifjáreigendur verið rólegir? �??Við teljum að innlán séu örugg og að eignir sjóðsins dugi til að greiða innlánseigendum.�??
Hvað þýðir slitastjórn, verður sjóðnum lokað? �??�?g get ekki svarað því til hvað aðgerða hugsanleg slitastjórn myndi grípa til,�?? svaraði Hafsteinn en er inni í myndinni að sameinast öðrum banka? �??Samhliða aðgerðaráætlun þá erum við í viðræðum við einn viðskiptabanka um yfirtöku ef við náum ekki að ljúka aðgerðum samkvæmt aðgerðaáætlun,�?? sagði Hafsteinn