Eyjamenn steinlágu gegn Aftureldingu
Afturelding tryggði sér 2. sæti Olís-deildar karla með átta marka sigri á Eyjamönnum í Eyjum, í kvöld. Gestirnir voru sterkari allan leikinn en Pétur Júníusson átti frábæran leik og skoraði átta mörk.
�?að var orðið ljóst strax fyrir leik að það yrði á brattan að sækja fyrir Eyjamenn. Tvo sterka leikmenn vantaði í liðið, þá Magnús Stefánsson og Sindra Haraldsson. Ungur Eyjamaður þurfti því að leika í mikilvægustu stöðunni í varnarleik Eyjamanna, hafsentinn.
Fjarvera þessara tveggja frábæru varnarmanna truflaði Eyjamenn og það gríðarlega. Hvað eftir annað opnuðust glufur í vörninni og það nýttu gestirnir sér. Pétur Júníusson átti eins og áður segir stórleik í sókninni hjá Aftureldingu, hann skoraði átta mörk úr níu skotum.
Eyjamenn komust þó þrisvar sinnum yfir í upphafi leiks, eftir fimmtán mínútna leik var þó jafnt 6-6.
Á upphafsmínútunum lék Andri Heimir Friðriksson mjög vel í liði heimamanna og skoraði þrjú af fyrstu fimm mörkum ÍBV.
Á þessum tímapunkti hófst frábær kafli gestanna.
Vörnin small og þá fylgja yfirleitt hraðaupphlaupin, Árni Bragi Eyjólfsson var einstaklega drjúgur á þessum kafla. Mörkin komu þó úr öllum áttum og staðan skyndilega orðin 6-12, gestunum í vil.
�?á skoruðu Eyjamenn loksins mark en það eingöngu vegna þess að �?rn Ingi Bjarkason stóð í markinu. Hann hefur aldrei verið frægur fyrir mikla markmannstakta.
Mestur varð munurinn þó undir lok fyrri hálfleiks þegar að gestirnir komust sjö mörkum yfir í 10-17. Grétar �?ór Eyþórsson sá þó til þess að Eyjamenn færu ekki grautfúlir inn í búningsklefa því honum tókst að minnka muninn í sex mörk úr vítakasti.
Í upphafi síðari hálfleiks tókst heimamönnum að minnka muninn jafnt og þétt en þeir fóru að spila mun betur. �?egar munurinn var kominn niður í fjögur mörk gáfu gestirnir aftur í. Flottur kafli þeirra sá til þess að staðan var orðin 18-25.
Gestirnir nýttu sér �??vestið�?? þegar að þeir léku manni færri. �?á skiptu markmenn þeirra við �?rn Inga Bjarkason og leikmenn Aftureldingar því jafn margir í sókninni. �?etta gekk gríðarlega vel hjá þeim en þeir töpuðu varla kafla þegar þeir misstu mann útaf.
Lokakafli gestanna var einnig aðdáunarverður en þeir keyrðu grimmt í bakið á Eyjamönnum. Að lokum voru gestirnir komnir átta mörkum yfir og lokatölur voru því 23-31.
Með sigrinum tryggðu gestirnir sér það að þeir verða aldrei neðar en 2. sætið. �?eir eiga einnig möguleika á deildarmeistaratitlinum. �?að er því ljóst að Afturelding á heimaleikjaréttinn í 8-liða úrslitunum og einnig í undanúrslitunum, komist þeir þangað.
ÍBV er þó enn í basli í 6. sæti deildarinnar og þurfa eitt stig til viðbótar til að tryggja sætið í úrslitakeppninni.

Nýjustu fréttir

Páskaeggjaleit Sjálfstæðisflokksins
Erfitt tíðarfar undanfarið en góður afli hjá Kap VE
Prúðmannleg pólitík
Páskar í Landakirkju
Bræður frá Úkraínu fundu ró í Vestmannaeyjum 
Óskar og Sigurjón margfaldir aflakóngar
Sigurjón bjargaði fjórum áhöfnum
Leik ÍBV og FH í Bestu deildinni flýtt
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.