Hlynur náði næstbesta tíma Íslendings
Hlyn­ur Andrés­son náði á föstu­dag lág­marki fyr­ir Evr­ópu­meist­ara­mót 23 ára og yngri sem fram fer í Tall­inn í Eistlandi í sum­ar, þegar hann tók þátt í 10 þúsund metra hlaupi á Raleigh Relays í Norður-Karólínu.
Tími Hlyns var 29:38,42 mín­út­ur, sem er ein­ung­is tíu sek­únd­um frá Íslands­meti Kára Steins Karls­son­ar frá 2008, sem er 29:28,05, og er þetta því næst­besti tími Íslend­ings í grein­inni. Met Sig­fús­ar Jóns­son­ar, 30:10 mín­út­ur, hafði staðið lengi.
Hlyn­ur sem er frá Vest­manna­eyj­um keppti með ís­lenska landsliðinu í Evr­ópu­bik­ar­keppn­inni í fyrra. Hann er í námi í Banda­ríkj­un­um en æfir und­ir leiðsögn Gunn­ars Páls Jóakims­son­ar hjá ÍR á sumr­in.

Mbl.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Sterkur lokakafli skilaði ÍBV sigri gegn Selfossi
Emil Tumi sigurvegari í yngri flokki  
Stórum framkvæmdaráfanga að ljúka hjá Vinnslustöðinni
Gildrur notaðar til fiskmerkinga við Vestmannaeyjar
Treg veiði hjá Eyjaskipunum
Gary Phillips og Parkman Cook til ÍBV
Dæluskipið Sebastiano Caboto komið til Eyja
Fyrsti heimaleikurinn – ÍBV fær Selfoss í heimsókn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.