Yfirvofandi verkfall BHM mun hafa víðtæk áhrif á starfsemi HSU
Nú er útlit fyrir að koma muni til boðaðs verkfalls í vikunni hjá nokkrum fagstéttum BHM sem starfa innan sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana. Verkfallið mun valda tilheyrandi röskun á daglegri starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og óþægindum fyrir sjúklinga. Fyrirséð er að ef til verkfalls kemur mun það hafa umtalsverð áhrif á starfsemi HSU sem veitir þjónustu í víðfeðmasta heilbrigðisumdæmi landsins. Framkvæmdastjórn HSU hefur yfirfarið undanþágulista aðildarfélaga og borðið saman við vinnufyrirkomulag þeirra starfstétta sem hafa boðað verkfall. Lögð er rík áhersla á að tryggja öryggi sjúklinga í allri þjónustu HSU í verkfallinu með góðri samvinnu við hlutaðeigandi starfsmenn og bandalag þeirra. Bakvaktir eru tryggðar en þó er ljóst að verkfallið mun hafa veruleg áhrif á rannsóknar- og myndgreiningarþjónustu HSU ásamt þjónustu ljósmæðra, sálfræðinga og sjúkraþjálfara á HSU. Viðbúið er að yfirvofandi verkfall BHM muni hafa víðtæk áhrif á starfsemi HSU ef aðgerðir dragast á langinn. Komi til verkfalls mun það raska starfsemi HSU eftirfarandi daga:
�?� Lífeindafræðingar hafa boðað ótímabundið verkfall frá 7. apríl, kl. 8-12 alla virka daga auk þess sem þau boða verkfall frá kl. 12-16 þann 9. apríl. Bakvakt verður í Vestmannaeyjum og á Selfossi samkvæmt undanþágulista.
�?� Geislafræðingar hafa boðað ótímabundið verkfall frá 7. apríl. Bakvakt verður í Vestmannaeyjum og á Selfossi samkvæmt undanþágulista.
�?� Sálfræðingar hafa boðað verkfall þann 9. apríl, kl. 12-16. Hjá þeim er engin undanþága fyrir bakvakt.
�?� Sjúkraþjálfari hafa boðað verkfall þann 9. apríl, kl. 12-16. Hjá þeim er engin undanþága fyrir bakvakt.
�?� Ljósmæðrafélag Íslands hefur boðað ótímabundið verkfall frá 7. apríl, alla þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga. Bakvakt verður í Vestmannaeyjum og á Selfossi samkvæmt undanþágulista.
Aðeins er veitt bráðaþjónusta hjá framangreindum fagstéttum hjá HSU komi til verkfalls. �?eir íbúar Suðurlands og aðrir þeir sem þurfa á þjónustu HSU að halda eru beðnir um að fylgjast með tilkynningum um framvindu mála á heimasíðu HSU og snjáldursíðu HSU en þar munu birtast upplýsingar um þau áhrif sem verkfallið kann að hafa. Verði af boðuðu verkfalli munum við hjá HSU, sem áður, leggja áherslu á að tryggja öryggi í þjónustu við alla sem leita til HSU.
Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri HSU.

Nýjustu fréttir

Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.