Með unnin leik í höndunum
Afturelding lagði ÍBV í framlengdum leik 27-25 eftir að ÍBV var með sigurinn í hendi sér.
ÍBV skoraði fyrsta mark leiksins en svo kom góður kafli Aft­ur­eld­ingar og þeir komust í 7:1 og virt­ist eiga auðveld­an sig­ur vís­an en Eyja­menn voru ekki sammála. �?eir gengu jafnt og þétt á forskot heimamanna og í hálfleik var staðan 11-8. ÍBV hélt áfram að ganga á Mosfellinga og náðu nokkrum sinnum að minnka muninn í eitt mark, þeir náðu svo loksins að jafna, 17-17 á 49. mínútu þegar Agnar Smári Jónsson skoraði. Afturelding náði þá aftur tveggja marka forystu en þá kom frábær kafli ÍBV og þeir skoruðu næstu fimm mörk og staðan orðin 20-22.
Jóhann Gunnar EInarsson í liði Aftureldingar náði þá að skora og staðan orðin 21-22, ÍBV fékk boltann og Gunnar Magnússon, þjálfari ÍBV tók leikhlé þegar aðeins 23 sekúndur voru eftir. Leikurinn hófst á ný og Agnar Smári rauk af stað, sendi á Andra Heimi sem skaut þegar 17. sekúndur voru eftir en Davíð Svansson, markmaður Aftureldingar varði. Strákarnir fóru illa af ráði sínu en þeir voru með leikinn í hendi sér, dómarinn hafði ekki gefið merki um leikleysu og því lá ekkert á.
Gunnar Malmquist �?órsson jafnaði metin í 22-22 og leikurinn því framlengdur. Aft­ur­eld­ing öll völd í framlengingunni og skoraði þrjú fyrstu mörk­in, sem var of mikið fyrir ÍBV. Lokatölur 27-25.
Liðin mætast aftur á föstudaginn klukkan 18:00 í Vestmannaeyjum, þá þýðir ekkert annað en sigur fyrir strákanna ætli þeir að halda sér inni í úrslitakeppninni. Með sigri getur Afturelding tryggt sér sæti í undanúrslitum.
Mörk ÍBV skoruðu þeir; Agnar Smári Jónsson 6, Theodór Sigurbjörnsson 5, Andri Heimir Friðriksson 5, Grétar �?ór Eyþórsson 4, Guðni Ingvarsson 2, Bergvin Haraldsson 2 og Hákon Daði Styrmisson 1.
Kolbeinn Arnarsson varði 22 skot.

Nýjustu fréttir

Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.