Nú er þörf á að virkja þennan vilja
Á Íslandi er deilt um laun. �?tlit er fyrir hörðustu kjaradeilur í langan tíma. Tjónið fyrir íslenskan efnahag getur orðið umtalsvert, bæði hvað varðar beint tap vegna vinnustöðvunar og síðan það ríka tjón sem orðið getur ef verðbólgudraugnum verður hleypt úr hans grunnu gröf.
�?g tók mig til og rýndi aðeins í útgjöld Vestmannaeyjabæjar vegna launagreiðslna frá 2008. Sá sannleikur sem þar birtist er…
…ekki algildur en veitir þó ákveðna yfirsýn. Hjá Vestmannaeyjabæ eru enda gefnir út launaseðlar á yfir 500 manns á hverju ári. Unnið er eftir 22 kjarasamningum í 18 stofnunum.
Launagreiðslur hækka en skattarnir enn meira
Staðreyndin er sú að launagreiðslur hjá Vestmannaeyjabæjar hafa hækkað um 24,4% frá 2008. �?að segir þó ekki alla söguna. Staðgreiðsla skatta hefur nefnilega hækkað mikið meira eða um 34,2% á þessum sama tíma og tryggingagjald um 25,9%. Hið opinbera er sem sagt að taka til sín stærra og stærra hlutfall af launagreiðslum Vestmannaeyjabæjar um hver mánaðarmót.
Báknið
�?að kann að vera að í því umhverfi sem nú ríkir í kjaraviðræðum þurfi ríkisstjórn að líta til þessa þáttar. �?að kann að vera að hluti af kröfu launafólks sé að ríkið slaki á heljargripi skattheimtunnar. �?að þarf ekki mikla ígrundun til að átta sig á því að eftir því sem ríkið tekur meira til sín þá verður minna eftir hjá launþegum. Eftir því sem báknið þenst meira út þarf ríkið meiri tekjur.
Mikil aukning í ríkisrekstri
Rekstrarkostnaður ríkisins (utan gjaldfærðra lífeyrisskuldbindinga) hækkaði að raunvirði um tæplega 113 þúsund milljónir (113.000.000.000) króna frá árinu 2000 til 2013 eða um 58%. Hækkunin jafngildir tæplega 98% af tekjuskatti sem ríkissjóður lagði á einstaklinga árið 2013. �?ar við bætist að sértekjur stofnana ríkisins, sem líka falla á launafólk, voru rúmlega 11 þúsund milljónum (11.000.000.000) hærri árið 2013 en 2000.
Lækkun skatta
�?að kann því að vera að með því að forgangsraða í ríkisrekstrinum megi lækka skatta og rétta þar með hlut launafólks. Hækkun á skattleysismörkum, lækkun tolla á barnaföt, lækkun skatta á leiguhúsnæði, lækkun tryggingagjalds og fl. gæti auðveldað kjaraviðræður.
Með lækkun skatta má ná fram kjarabótum
Í landinu núna er ríkisstjórn sem segist vera hægra megin við miðju. Í stefnuyfirlýsingu þeirrar ríkistjórnar segir orðrétt:
�??Með lækkun skatta á tekjur, vörur og þjónustu má ná fram mikilvægum kjarabótum sem útfærðar verða nánar í samráði við aðila vinnumarkaðarins �?��??
Nú er þörf á því að virkja þennan vilja sem þarna kemur fram.

Nýjustu fréttir

MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.