Verkföll á HSU
Nú hefur verkfall BHM staðið í um 6 vikur. Verkfallið hefur þegar haft veruleg áhrif á daglega starfsemi stofnunarinnar. Starfsemi rannsóknarstofunnar dróst saman um 70% í apríl vegna verkfalls lífeindafræðinga. Engar rannsóknir eru framkvæmdar á röntgendeildinni nema í bráðatilfellum að fenginni undanþáguheimild eða vegna útkalla bakvaktar eftir kl. 16:00 á daginn, vegna allsherjarverkfalls geislafræðinga. Alls hefur HSU á Selfossi og í Vestmannaeyjum fengið 14 undanþáguheimildir alls vegna bráðatilvika til myndgreininga að öðru leyti liggur starfsemi röntgendeildarinnar niðri eins og áður sagði. Einnig hafa 29 undanþágur verið veittar vegna blóðrannsókna sem ekki þola bið. Ljóst er að verkfallið er þegar farið að hafa alvarleg áhrif á framvindu meðferðar margra sjúklinga sem þurfa að þola bið eftir svörum sem mögulega varða næstu skref í meðferð. Ástandið er því orðið grafalvarlegt. Ef verkfallið varir áfram mun HSU ekki geta tryggt sjúklingum bestu meðferð og getur ekki ábyrgst öryggi allra sjúklinga. Framkvæmdastjórn HSU er ekki kunnugt um að sjúklingar hafi orðið fyrir skaða vegna verkfallsins.
Til viðbótar við verkfallsástandið sem nú ríkir hefur verið boðað til í allsherjarverkfalls hjúkrunarfræðinga frá og með 27. maí n.k. nema að gengið hafi verið frá kjarasamningi fyrir þann tíma. Verkfall hjúkrunarfræðinga yrði HSU geysilega erfið viðbót við yfirstandandi verkföll lífeinda- og geislafræðinga og ljósmæðra. �?ví er alveg ljóst að allsherjarverkfall hjúkrunarfræðinga mun draga úr getur HSU til að sinna þörfum sjúklinga og meðhöndla einkenni. Verkfallið mun hamla getu okkar við að bregðast við ástandi sjúklinga og veita viðunandi meðferð. Ef núverandi verkföll munu vara áfram og við bætist verkfall hjúkrunarfræðinga mun HSU ekki geta tryggt gæði í meðferð og öryggi sjúklinga verður ógnað. Við óttumst það ástand sem þá gæti skapast en munum tryggja alla bráðaþjónustu eins og kostur er. Aðgerðir eru í undirbúningi á HSU til að bregðast við yfirvofandi verkfalli. Samningsaðilar eru hvattir til að leysa kjaradeildur heilbrigðisstétta sem fyrst og ganga hratt til samninga svo forða megi því að skaði hljótist af fyrir sjúklinga sem njóta meðferðar á HSU.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar landa í Grindavík
Sterk uppbygging og skýr framtíðarsýn
Skortur á félagslegum tengslum er dauðans alvara
Síðasta Aglow samvera vetrarins
Landeyjahöfn orðin fær á háflóði
Heimsklassa matreiðslumeistarar frá Íslandi á MATEY
Úrslitaeinvígið: Mæta Val á heimavelli
Herjólfur III í prufusiglingu á miðvikudag
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.