Sameiningu Landsbankans og Sparisjóðs Vestmannaeyja að ljúka
�?ann 29. mars voru Landsbankinn og Sparisjóður Vestmannaeyja sameinaðir samkvæmt ákvörðun Fjármálaeftirlitsins. �?ll útibú sparisjóðsins eru nú útibú Landsbankans og á þeim stöðum þar sem bæði fyrirtækin höfðu starfsemi hafa útibú og afgreiðslur verið sameinuð.
Frá og með fimmtudeginum 14. maí munu öll viðskipti viðskiptavina Sparisjóðs Vestmannaeyja færast endanlega í Landsbankann. Leitast hefur verið við að gera þessar breytingar eins þægilegar fyrir viðskiptavini og kostur er.
Helstu þættir þessara breytinga eru:
Reikningar viðskiptavina hjá Sparisjóði Vestmannaeyja verða sýnilegir í netbanka Landsbankans síðari hluta dags, fimmtudaginn 14. maí. Lesaðgangur að Heimabanka Sparisjóðsins verður opinn í þrjá mánuði frá þeim degi, en ekki er hægt að framkvæma neinar aðgerðir.
�?tibúanúmer breytast og verða sem hér segir:
Vestmannaeyjar úr 1167 í 0185
Selfoss úr 1169 í 0189
Höfn úr 1147 í 0169
Djúpivogur úr 1147 í 0169
Breiðdalsvík úr 1147 í 0169
Ekki þarf að skipta út greiðslukortum, debet- og kreditkortum og hægt verður að nota þau þar til kemur að næstu endurnýjun. �?ryggis- og PIN-númer kortanna breytast ekki.
Eiginleikar, skilmálar, verð og kjör munu breytast til samræmis við vörur og þjónustu Landsbankans. Upplýsingar um vörur, vildarkerfi og kjör hjá Landsbankanum er að finna á heimasíðu Landsbankans, www.landsbankinn.is
�?ll reikningsnúmer veltureikninga og innlánsreikninga verða hins vegar óbreytt og sama á við um lánsnúmer útlána nema að útibúanúmer breytast. Höfuðbækur reikninga haldast einnig óbreyttar að undanskilinni höfuðbók Gullárareiknings sem var 15 en verður 05 og bundinna Trompreikninga sem voru 05 en verða 15.
Vakin er athygli á að í flestum tilvikum breytast vaxtakjör reikninga. Viðskiptavinir eru hvattir til að kynna sér þær sparnaðarleiðir sem Landsbankinn býður og þá þjónustu sem tengist fjárfestingum. Í netbanka Landsbankans er hægt að stofna sparireikninga, kaupa í verðbréfasjóðum og ganga frá reglubundnum sparnaði bæði á sparireikninga og í sjóði.
�?jónustuver opið á upstigningardag og um helgina
Vegna þessara breytinga verður �?jónustuver Landsbankans �?? sími 410 4000 �?? opið á uppstigningardag 14. maí, laugardag 16. maí og sunnudag 17. maí frá kl. 10.00 �?? 14.00 alla dagana. Starfsfólk �?jónustuvers veitir allar upplýsingar um fyrrnefndar breytingar og einnig er hægt að senda fyrirspurnir eða ábendingar á info@landsbankinn.is Föstudaginn 15. maí er �?jónustuverið opið frá kl. 09.00 �?? 17.00 en opnunartími útibúa er frá kl. 09.00 �?? 16.00.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar landa í Grindavík
Sterk uppbygging og skýr framtíðarsýn
Skortur á félagslegum tengslum er dauðans alvara
Síðasta Aglow samvera vetrarins
Landeyjahöfn orðin fær á háflóði
Heimsklassa matreiðslumeistarar frá Íslandi á MATEY
Úrslitaeinvígið: Mæta Val á heimavelli
Herjólfur III í prufusiglingu á miðvikudag
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.