Á laugardaginn var heldur óvanalegt hlaup til Vestmannaeyja þegar meðlimir hópsins �?tmeða hlupu hingað. Hópurinn �?tmeða hljóp hringinn í kringum landið í góðargerðarskyni, safnaði áheitum og til að vekja athygli á sjálfsvígum ungra karlmanna.
Hópurinn hljóp þjóðveg landsins og ákvað að koma við í Vestmannaeyjum og hlaupa í Herjólfi þar sem Herjólfur er þjóðvegur okkar Eyjamanna. Meðlimir hópsins höfðu með sér hlaupabretti í siglingunni og hljóp á meðan henni stóð. Eflaust hefur aldrei verið hlaupið jafn langt í Herjólfi og en það reyndist sumum erfiðara en öðrum í hópnum. Hlaupararnir tóku svo léttan hring í Eyjum áður en þau héldu áfram för sinni í kringum landið.
,,Markmið hópsins er að vekja athygli á því að sjálfsvíg eru algengasta dánarorsök ungra íslenskra karlmanna og safna áheitum til að efna til vitundarvakningar um vandann,�?? segir inni á
Facebook síðu hópsins. ,,Geðhjálp, Hjálparsími Rauða krossins og hlaupahópurinn standa sameiginlega að átaks- og forvarnarverkefnisins �?tmeð�??a. Með slagorðinu eru ungir menn hvattir til að setja tilfinningar sínar í orð í því skyni að hafna ekki í tilfinningalegu öngstræti með ófyrirséðum afleiðingum. Markmið átaksins er að efna til vitundarvakningar meðal almennings til að fækka sjálfsvígum í þessum viðkvæma hópi. Fjórir til sex ungir menn taka líf sitt að jafnaði á Íslandi á hver
Geðhjálp, Hjálparsími Rauða krossins og hlaupahópurinn standa sameiginlega að baki átakinu en sjálfsvíg eru algengasta dánarorsök ungra karlmanna á Íslandi. Á bilinu 4 til 6 ungir menn á aldrinum 18 til 25 ára taka líf sitt á Íslandi á hverju ári.�??
Enn er hægt að styrkja málefnið í síma 904 1500 eða leggja inn frjáls framlög á
Styrktarreikningur: 546-14-411114
Kennitala: 531180-0469