�?venjulegt hlaup til Vestmannaeyja
Á laugardaginn var heldur óvanalegt hlaup til Vestmannaeyja þegar meðlimir hópsins �?tmeða hlupu hingað. Hópurinn �?tmeða hljóp hringinn í kringum landið í góðargerðarskyni, safnaði áheitum og til að vekja athygli á sjálfsvígum ungra karlmanna.
Hópurinn hljóp þjóðveg landsins og ákvað að koma við í Vestmannaeyjum og hlaupa í Herjólfi þar sem Herjólfur er þjóðvegur okkar Eyjamanna. Meðlimir hópsins höfðu með sér hlaupabretti í siglingunni og hljóp á meðan henni stóð. Eflaust hefur aldrei verið hlaupið jafn langt í Herjólfi og en það reyndist sumum erfiðara en öðrum í hópnum. Hlaupararnir tóku svo léttan hring í Eyjum áður en þau héldu áfram för sinni í kringum landið.
,,Markmið hópsins er að vekja athygli á því að sjálfsvíg eru algengasta dánarorsök ungra íslenskra karlmanna og safna áheitum til að efna til vitundarvakningar um vandann,�?? segir inni á Facebook síðu hópsins. ,,Geðhjálp, Hjálparsími Rauða krossins og hlaupahópurinn standa sameiginlega að átaks- og forvarnarverkefnisins �?tmeð�??a. Með slagorðinu eru ungir menn hvattir til að setja tilfinningar sínar í orð í því skyni að hafna ekki í tilfinningalegu öngstræti með ófyrirséðum afleiðingum. Markmið átaksins er að efna til vitundarvakningar meðal almennings til að fækka sjálfsvígum í þessum viðkvæma hópi. Fjórir til sex ungir menn taka líf sitt að jafnaði á Íslandi á hver
Geðhjálp, Hjálparsími Rauða krossins og hlaupahópurinn standa sameiginlega að baki átakinu en sjálfsvíg eru algengasta dánarorsök ungra karlmanna á Íslandi. Á bilinu 4 til 6 ungir menn á aldrinum 18 til 25 ára taka líf sitt á Íslandi á hverju ári.�??
Enn er hægt að styrkja málefnið í síma 904 1500 eða leggja inn frjáls framlög á
Styrktarreikningur: 546-14-411114
Kennitala: 531180-0469

Nýjustu fréttir

Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.