Glæsilegur sigur á Keflavík
ÍBV tók á móti Kefla­vík í Vest­manna­eyj­um í dag þegar 18. um­ferð Pepsi deildar karla fór fram. Bæði lið þurftu virkilega á sigri að halda til að tryggja veru sína í úrvalsdeild að ári en svo fór að ÍBV hafði 3-0 sigur á andlausum Keflvíkingum.
ÍBV byrjaði leikinn af krafti og á fyrstu mínútum leiksins var Spánverjinn Sito búin að leika fram hjá varnarmönnum Keflavíkur og skaut í slá úr dauðafæri. Bjarni Gunnarsson fékk frákastið en skaut í varnarmann sem varði á marklínu. Jón Ingason átti svo frábært skot af 35 metra færi en boltinn skall í þverslánni og Eyjamenn óheppnir að vera ekki komnir yfir, en þeir þurftu ekki að bíða lengi því á 31. mínútu kom Ian Jeffs ÍBV yfir eftir skot beint úr aukaspyrnu. ÍBV bættu svo við öðru marki leiksins á 38. mínútu þegar Gunn­ar Heiðar �?or­valds­son skoraði úr víta­spyrnu eft­ir að Sito var felld­ur inn­an teigs. Keflvíkingar fengu svo dauðafæri í uppbótatíma fyrri hálfleiks en Eyjamenn vörðu á marklínu og staðan 2:0 í hálfleik.
ÍBV fengu nokkur færi í síðari hálfleik en náðu ekki að koma boltanum í netið, en það var svo á 73. mínútu sem þriðja markið kom. Hafsteinn Briem skoraði úr frákasti eftir aukaspyrnu sem Sindri, markmaður Keflavíkur, varði frá Jeffs. ÍBV spilaði virkilega vel í dag og skiluðu allir leikmenn sínu vel.

Nýjustu fréttir

„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna
Laxey meðal þátttakenda á Lagarlífi í Hörpu
Leggja til óbreytt útsvar á næsta ári
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.