Heilbrigðisráðherra úthlutar HSU 20 milljónum króna til tækjakaupa
Kristján �?ór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur úthlutað heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni rúmum 100 milljónum króna til tækjakaupa.
Við fjárlagagerð ársins 2015 var ákveðið að auka tímabundið fjárveitingu til tækjakaupa á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni. Aukningin nam 100 milljónum króna. Fénu hefur nú verið úthlutað að höfðu samráði við forstöðumenn viðkomandi stofnana sem gerðu ráðuneytinu grein fyrir þeim búnaði sem þeir teldu brýnast að kaupa, auk þess sem tillit var tekið til rekstrarumfangs viðkomandi stofnana.
Framlögin skiptast milli stofnananna á eftirfarandi hátt:
Heilbrigðisstofnun Vesturlands 18,0 m.kr.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða 10,0 m.kr.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands 20,0 m.kr.
Heilbrigðisstofnun Austurlands 15,0 m.kr.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands 20,0 m.kr.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 18,0 m.kr.
Ráðherra segir þetta aukna framlag vegna tækjakaupa til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni ríma vel við þær áherslur sem lagðar voru þegar gerð var fjögurra ára áætlun 2014�??2017 um aukin framlög til tækjakaupa á Landspítalanum og Sjúkrahúsinu á Akureyri: �??Ár frá ári er verið að auka framlög til mikilvægra verkefna á sviði heilbrigðismála og efla og styrkja þjónustu heilbrigðiskerfisins um allt land,�?? segir Kristján �?ór Júlíusson heilbrigðisráðherra.
Heimasíða Heilbrigðisstofnunar Suðurlands greindi frá.

Nýjustu fréttir

The Puffin Run hlaupið í níunda sinn á morgun
Sterkara íþróttasamfélag fyrir alla
Frábær endurkomusigur ÍBV gegn Víkingi
Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskis virði?
Krefjandi aðstæður við borun
Jóný bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2026
Guðný Geirsdóttir hjá ÍBV út 2027
Góð stemmning á herrakvöldi fótboltans
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.