Réttindalaus og ölvaður undir stýri
�?að var í ýmis horn að líta hjá lögreglu í liðinni viku vegna hinna ýmsu verkefna sem upp komu. �?rátt fyrir fjölda fólks að skemmta sér um helgina fór skemmtanahaldið ágætlega fram og lítið um útköll á öldurhúsin.
Að morgni sl. sunnudags var lögreglan kölluð að Ásavegi 18 vegna elds í timburkofa í garði sunnan við húsið. Jafnframt var slökkvilið Vestmannaeyja kallað út. �?egar komið var á staðinn var mikill eldur í kofanum, en greiðlega gekk að slökkva eldinn og varð ekki teljandi tjón á íbúðarhúsinu. Á vettvangi var maður í annarlegu ástandi sem grunaður er um að hafa kveikt í kofanun. Jafnframt braut hann rúðu í kjallarahurð og fór þar inn. Maðurinn var handtekinn og fékk gistingu í fangageymslu þar til víman rann af honum. Hann neitaði sök og er málið í rannsókn.
Einn ökumaður var stöðvaður í liðinni viku vegna gruns um ölvun við akstur, en hann hefur ítrekað verið staðin að akstri undir áhrifum áfengis og var hann jafnframt réttindalaus við aksturinn.
�?á liggur ein sekt fyrir vegna brota á umferðarlögum en þarna var um svokallað stöðubrot að ræða, eða ólöglega lagningu ökutækis.
Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í vikunni en um var að ræða minniháttar óhapp og engin slys á fólki.

Nýjustu fréttir

Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna
Laxey meðal þátttakenda á Lagarlífi í Hörpu
Leggja til óbreytt útsvar á næsta ári
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Öryggi og framtíðarsýn í forgrunni
Bærinn leggur fram 432 milljónir vegna vatnslagnarinnar
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.