�?rjár undirskriftir hjá handknattleiksdeild
Handknattleiksdeild ÍBV undirritaði í dag þrjá samninga á 900 Grillhús, annars vegar við tvo leikmenn kvennaliðs ÍBV þær Gretu Kavaliuskaite og Selmu Rut Sigurbjörnsdóttur og hins vegar áframhaldandi samstarfssamning við 900 Grillhús. Grillhúsið hefur stutt gríðarlega vel við bakið á deildinni undanfarin ár og mun halda því góða samstarfi áfram. �?að var því við hæfi að undirrita samninga þar í dag. 900 Grillhús gefur t.a.m pizzur á alla leiki ÍBV til stuðnings félaginu auk margs annars til stuðnings félaginu. Nú síðast sáu þau Geiri og Jóhanna um veitingar milli leikjanna í tvennunni sl. fimmtudag fyrir krókódílana, stuðningsmannahóp handboltans.
Greta skrifaði undir þriggja ára samning við félagið, en hún kom til liðsins rétt áður en Olís deild kvenna hófst. Greta er 22 ára og hefur komið vel inn í hópinn. Hún getur leyst allar stöður fyrir utan og er mikið efni. Auk þess að spila fyrir ÍBV er hún í landsliði Litháen. Hún hefur skorað 42 mörk í átta leikjum fyrir ÍBV og er næst markahæsti leikmaður liðsins.
Selma Rut Sigurbjörnsdóttir er nítján ára línumaður og Eyjastelpa í húð og hár, en hún er uppalinn hjá félaginu. Selma Rut gerði eins árs samning við félagið líkt og aðrir yngri leikmenn hafa gert. Selma Rut hefur haft fast sæti í hóp meistaraflokks síðustu tvö tímabil og hefur bætt sig gríðarlega á þeim tíma. Selma Rut er framtíðarleikmaður sem vert er að fylgjast með.
�?að var Valgerður Guðjónsdóttir varaformaður handknattleiksdeildar sem undirritaði samningana fh. ÍBV í fjarveru Karls Haraldssonar formanns.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.