Í haust fóru skólarnir okkar af stað af miklum krafti. Kennarar, nemendur, foreldrar og flestir bæjarbúar skynjuðu þann metnað sem skólinn hefur til að raða sér í röð þeirra bestu. Viljinn til að gera góðan skóla betri er ríkur. Meðal helstu áhersluatriða eru nú sérstök alúð við að efla enn frekar stærðfræði- og lestrarkennslu enda eru þær greinar nánast grunnurinn að öllum öðrum námsgreinum.
Skýrar áherslur
Menntamálaráðherra kom á dögunum og skrifaði undir þjóðarsáttmála um læsi og Vestmannaeyjabær og skólarnir skrifuðu undir framtíðarsýn í menntamálum þar sem lögð er áhersla á að bæta stærðfræði og lestur. �?jóðarsáttmálinn og framtíðarsýnin hefur verið kynnt fyrir nemendum og fengu allir sent skjal heim með áhersluatriðunum, einnig hafa fjölmiðlar verið öflugir í kynna áherslurnar. Áherslurnar eru því skýrar.
Markviss og góð vinna skólanna
Á heimasíðu GRV er að finna lestrarstefnu GRV sem er frábært skjal sem unnið er eftir, þar geta kennarar, nemendur og foreldrar séð markmið, áherslur og viðmið hvers aldurs fyrir sig hvað varðar lestur. Undanfarin ár hefur verið unnið eftir hugmyndafræðinni �??Leið til læsis�?� og �??Orð af orði�?�. Á síðasta skólaári var einnig farið af stað með heimalestur í öllum árgöngum skólans og er mikilvægi þess tilgreint í lestrarstefnunni. Leikskólarnir láta sitt ekki eftir liggja og eru að sama skapi að vinna markvisst að því að efla lestrar og stærðfræðikennslu.
Árangur og framfarir
Fræðsluráð hefur reglulega fengið kynningar frá starfsmönnum skólanna og hefur verið gaman að sjá hversu metnaðarfullt starfið er. Árangurinn af þessu öllu er nú þegar byrjaður að skila sér og sjáum við strax framfarir. �?að er því gaman að sitja í fræðsluráði og finna kraftinn og metnaðinn hjá skólunum okkar.
Trausti Hjaltason
formaður fræðsluráðs.