Minnumst Stellu Hauks um Safnahelgina í Eldheimum
�?að verður enginn svikinn af framlagi Eldheima til Safnahelgarinnar. Tónleikarnir verða tvískiptir. Annarsvegar minnumst við Stellu Hauks og hinsvegar verða fluttar sígildar perlur kvikmyndasögunnar. �?etta ferð vel saman því flytjendurnir eiga það flestir sameiginlegt að hafa verið vinir Stellu, dáðst að og flutt verkin hennar og svo er þetta sama fólk núna að gera það gott með Bíóbandið, sem eins og nafnið gefur til kynna, spilar tónlist út bíómyndum.
Tónlistin hennar Stellu Hauks sómar sér vel meðal annara sígildra Eyjalaga
Stella Hauks lést 17 jánúar á þessu ári. Hún skilur eftir sig flotta áhugaverða tónlist sem allt of fáir þekkja. Tónleikarnir eru ekki bara til að heiðra minningu einstakrar manneskju og listakonu, heldur líka til að gefa fólki tækifæri til að kynnast verkunum hennar Stellu. �?au verða flutt af færustu tónlistarmönnum landsins. Í Bíóbandinu eru ásamt Andreu Gylfa., þeir Eddi Lár á gítar, Magnús R. Einarsson gítar og mandólín, Tómas M. Tómasson á bassa og Jón Indriðason trommuleikari.
Framundan eru vandaðir og stórskemmtilegir tónleikar. Blanda af því besta frá Stellu og úrval af því flottasta úr heimi kvikmyndanna. Tónleikarnir hefjast kl. 22.00 Húsið opnar kl. 21.00 Aðgangseyrir kr. 2.500.- Hægt er að panta borð í síma 4882700 eða á eldheimar@vestmannaeyjar.is

Nýjustu fréttir

Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.