Eins og ég sé komin hálfa leið til Brasilíu eftir að ég flutti hingað
Fjölmargir viðburðir eru á dagskránni um helgina og einn af þeim er Landið mitt – ljóðið mitt en þar munu sjö Eyjakonur kynna rætur sínar og flytja ljóð á móðurmáli sínu. Ein af þeim er Jackie Cardoso en hún er fædd og uppalin í suðurhluta Brasilíu. Blaðamaður settist niður með Jackie á fallegu heimili hennar að Faxastíg 2a þar sem hún og eiginmaður hennar, Einar Sigþórsson, hafa komið sér vel fyrir og gert miklar endurbætur á húsnæðinu.
Jackie ólst upp í 500 manna bæ við stóran þjóðgarð, þar sem finna má skóga, stórt stöðuvatn og strendur en Jackie er mikil sveitastelpa að eigin sögn. �?egar hún var tólf ára féll faðir hennar frá og fjölskyldan fluttist til stórborgar þar sem fjórar milljónir bjuggu. �??�?g gat aldrei sleppt sveitastelpunni í mér og ég upplifi hana hér í Eyjum,�?? sagði Jackie. Hún fluttist til Íslands árið 1991 ásamt barnsföður sínum. �?að var aldrei á dagskránni að fara frá Brasilíu en hún ákvað að elta ástina. �??�?g er með mjög sterkar rætur í Brasilíu en ég kynnist svo barnsföður mínum sem þá var skiptinemi þar sem ég bjó. Hann varð að fara aftur til Íslands eftir ákveðinn tíma og ætlaði að vera þar í sex til tólf mánuði og koma aftur. Mér fannst það virkilega erfitt og ég var hálf plötuð að koma til Íslands og átti upphaflega að vera í sex mánuði,�?? sagði Jackie sem vissi lítið um Ísland. �??Hjá okkur var ekkert internet, ég var lítið að pæla, það eina sem ég sá var að þetta var pínulítil eyja í hafinu. Við settumst að á Egilsstöðum, nánar tiltekið í Grímsárvirkjun hjá tengdapabba en hann var virkjunarstjóri þar. Mjög fljótlega varð ég ástfangin af Íslandi, þótt þetta hafi verið mikið menningarsjokk og mjög erfitt fyrir mig, brasilísku konuna, að koma hingað. �?ótt ég sé virkilega opin manneskja og Íslendingar upp til hópa virkilega kaldir þá varð ég strax hrifin. �?g man að mér þótti æðislegt að horfa á fréttirnar þegar ég var nýflutt. Aðalfréttin var að einhver kýr í Húsdýragarðinum bar kálfi. �?að var ekkert að gerast og þá hugsaði ég: -Vá hér, er flottur staður til að ala börnin mín upp.�??
Hér birtist brot úr viðtali við Jackie í nýjasta tölublaði Eyjafrétta en hún mun ásamt sex öðrum Eyjakonum vera á viðburinu Landið mitt- ljóðið mitt sem hefst klukkan 14:00 í dag.

Nýjustu fréttir

Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.