Ekki verið að troða húsinu á lóðina og skemma ásýnd hverfisins
Í umhverfis- og skipulagsráði í síðustu viku var tekin fyrir að nýju erindi lóðarhafa að Brimhólabraut 40 um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi. Erindið var sent til grenndarkynningar samkvæmt skipulagslögum og bárust ráðinu tvær athugasemdir á kynningartíma. Áður hafði ráðið frestað afgreiðslu og óskað eftir gögnum er sýna skuggavarp frá nýbyggingu. Lágu skuggavarpsteikningar fyrir fundinum.
�??Eitt af meginmarkmiðum gildandi aðalskipulags er að fullnýta eldri íbúðasvæði með þéttingu byggðar. Ráðið getur ekki fallist á þau rök að verið sé að troða eigninni á lóðina og skemma þannig ásýnd hverfisins. �?að er mat ráðsins að stærð og hæð hússins falli vel að lóð og útlitið sé í samræmi við byggðamynstur svæðis. Samkvæmt skuggavarpsteikningum er skuggavarp á nær liggjandi lóðir ekki meira en gengur og gerist í þéttbýli og getur því ekki talist óeðlilega mikið,�?? segir í afgreiðslu ráðsins sem samþykkti byggingaráform lóðarhafa og fól byggingarfulltrúa framgang erindis sem var svo vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Nýjustu fréttir

Öruggur sigur ÍBV gegn ÍR
Nemendum boðið á sundnámskeið
Dýpkun strandar á veðri og ölduhæð
Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.