Kári Bjarnason, forstöðumaður Bókasafns Vestmannaeyja lagði til við bæjarráð að fá allir nemendur fengju ókeypis bókasafnsskírteini óháð aldri. Einnig boðaði hann breytingu á gjaldskrá safnsins frá og með 1. janúar 2016.
Bæjarráð fagnaði þátttöku Bókasafnsins í lestrarátaki skólanna og telur að slíkt styðji mjög við uppbyggilegt starf í sveitarfélaginu. Frekari þátttaka í þeim anda sem lagt er til í bréfinu er því samþykkt.
Fram kom að samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 verji bærinn tæplega 56 milljónum til reksturs safnsins sembókasafns Vestmannaeyja á komandi ári. Safnið sé opið í um 250 daga á ári og kostar því hver opnunardagur um 213.000 krónur.
�??�?að er því ljóst að safnið er nánast algerlega rekið af framlögum sveitarsjóðs og sértekjur þess hverfandi litlar. �?ær smávægilegu breytingar sem lagðar eru til í bréfi forstöðumanns hafa því lítil áhrif á fjárhagslegan rekstur safnsins.