Stormur í dag?
Lögreglan í Vestmannaeyjum vill beina þeim tilmælum til allra Vestmannaeyinga að huga vel að lausum hlutum úti við fyrir daginn. Fergja allt lauslegt eða fjarlægja það.
�?að er mjög langt síðan að það hefur verið gefin út svona slæm veðurspá fyrir Vestmannaeyjar eins og sú sem er í gildi núna. �?á er vert að hafa það í huga að oft kemur veðrið til Eyja á undan áætlun!
Inni á vefsíðuni vedur.is er eftirfarandi spá fyrir daginn í dag. ,,Núna í morgunsárið er hægur vindur um allt land og stöku él á víð og dreif, en veður fer hratt versnandi með krappri lægð sem nálgast landið úr suðri. Um og eftir hádegi verður kominn austan- og norðaustanstormur og snjókoma með S-ströndinni, en síðdegis stefnir í að vindurinn verði að fullgildu ofsaveðri (meðalvindur yfir 28 m/s) á þeim slóðum og bætir einnig í ofankomuna. �?að hlýnar lítillega og mun því úrkoman að öllum líkindum færast út í slyddu við ströndina, en snjór inn til landsins. �?ar sem vindurinn er austanstæður smeygir hann sér fram hjá fjöllum á þessu svæði og magnast við það, en hviður geta farið upp í og yfir 50 m/s, einkum við �?ræfajökul og undir Eyjafjöllum.
Undir kvöld færist lægðin til austurs og við það dregur úr vindi og úrkomu S- og SA-til, en bætir í hvoru tveggja annars staðar. Seint í kvöld og nótt gengur síðan í norðanstorm um allt land með snjókomu, fyrst á Vestfjörðum, en stöku él og skafrenningur sunnan heiða á morgun. Dregur úr vindi annað kvöld og nótt.”

Nýjustu fréttir

Frábær árangur FÍV – Eyjakonfekt til Tromsø
Íþróttamaður mánaðarins – Helgi Ólafsson
Baldur á leið til Eyja
Ekki brotna! Fræðsla og forvarnir um beinheilsu
Margrét aðstoðar Miðflokkinn
Herrakvöld fótboltans
Fundur bæjarstjórnar í beinni
Samgöngur og sannindi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.