Eyjamenn í viðbragðsstöðu vegna væntanlegs vonskuveðurs
�??Skíthræðsla er ekki til neins. Góður undirbúningur og skynsemi er langtum betri. Við vitum að þetta getur orðið slæmt og verðum að vera klár í að bregðast við,�?? segir Elliði Vignisson bæjarstjóri í Eyjum.
�?etta eru viðbrögð Elliða við þeim yfirlýsingum blaðamanns að hann væri skíthræddur ef hann væri úti í Eyjum núna, vonskuveður er í vændum og gert er ráð fyrir því að vindur fari uppí um 40 m/s. En, Eyjamenn og Elliði eru ekki í neinu fári:
�??Við erum í viðbragðsstöðu. Vonskuveður er náttúrlega ekkert nýtt og við njótum góðs af því að í viðbragðskerfi okkar er fólk sem sem hefur staðið vaktina í áratugi. Ef að þörf verður á verður sjálfsagt virkjuð samhæfingarstöð vegna veðursins en við vonum að ekki þurfi að koma til þess.�??
Elliði segir að þeir viti sem er að það verði vont veður á öllu landinu. �??Enn er samt veður hjá okkur ágætt og meðan svo er þá er lykilatriðið fyrir fólk að fylgjast vel með og sýna aðgát í bland við skynsemi. Mér vitrara og reyndara fólk telur einnig að þó austanáttin geti verið allsvakaleg hér í Eyjum þá er bót í máli að hún er ekki jafn hviðótt. Stofnanir bæjarins eru í viðbragðsstöðu um að senda þjónustuþega sína heim áður en veðrið skellur á og ÍBV hefur fellt allar æfingar niður í íþróttahúsunum í dag. �?tli það megi ekki segja sem svo að við vonum það besta en búum okkur undir það vesta.�??
Elliði segir að Eyjamenn séu að undirbúa sig undir að ástandið verði sæmt en í aðstæðum sem þessum njóti þeir þess að búa yfir reynslumiklu og öflugu fólki.
vísir.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Sterkur lokakafli skilaði ÍBV sigri gegn Selfossi
Emil Tumi sigurvegari í yngri flokki  
Stórum framkvæmdaráfanga að ljúka hjá Vinnslustöðinni
Gildrur notaðar til fiskmerkinga við Vestmannaeyjar
Treg veiði hjá Eyjaskipunum
Gary Phillips og Parkman Cook til ÍBV
Dæluskipið Sebastiano Caboto komið til Eyja
Fyrsti heimaleikurinn – ÍBV fær Selfoss í heimsókn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.