Tilkynning frá Lögreglunni í Vestmannaeyjum
OLYMPUS DIGITAL CAMERA
OLYMPUS DIGITAL CAMERA
Nú lítur út fyrir það að veðurspáin gangi eftir og eigum við von á fárviðri hér í Eyjum síðari hluta dagsins í dag 7. desember. Búist er við vindhraða upp í 40 m/sek í hreinni austan átt og mun lægja undir miðnætti. Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra hefur lýst yfir óvissustigi fyrir allt landið. �?að almannavarnastig þýðir að grunur sé um að öryggi fólks, umhverfis eða byggðar geti verið ógnað. �?egar slíkt ástand er uppi eru allir viðbragðsaðilar í viðbragðsstöðu og hafa hafið undirbúning fyrir væntanleg verkefni. Ef óvissuástand breytist í hættustig verður gefin út tillkynning um það hér og í fjölmiðlum. Lögregla beinir því til almennings að vera ekki á ferðinni að óþörfu síðdegis í dag og í kvöld þegar versta veðrið gengur yfir. Í slíku veðri er alltaf hætta á foki sem getur valdi fólki miklum skaða. Enn og aftur er fólk hvatt til að huga að lausum munum og koma öllu í skjól sem gæti farið af stað í veðrinu. Lögregla minnir á að ef þörf er á aðstoð lögreglu eða björgunarsveita er hringt í 112.

Nýjustu fréttir

Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.