Ungir frumkvöðlar spreyta sig á stofnun og rekstri fyrirtækja
Um 300 ungir frumkvöðlar í framhaldsskólunum fá að spreyta sig á stofnun og rekstri fyrirtækja í nýsköpunarátaki sem félagið Ungir frumkvöðlar á Íslandi, Junior Achievement (JA), stendur fyrir í átta íslenskum framhaldsskólum. Upphafsfundur átaksins verður haldinn á morgun, 12. janúar kl. 17:00-18:00 í Háskólanum í Reykjavík. �?ar flytja erindi Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra, Robert Cushman, sendiherra Bandaríkjanna, Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og Hörður Guðmundsson sem er einn af stofnendum nýsköpunarfyrirtækisins Study Cake.
Hluti af JA Iceland verkefninu er keppni um bestu viðskiptahugmyndina og sýning og sala á nýjum vörum sem nemarnir munu skapa í verkefninu. Sigurvegarar keppninnar á Íslandi munu svo taka þátt í Evrópukeppni í Lucerne í Sviss, 25.-28. júlí. Fyrirtæki frá Verslunarskóla Íslands, E14-Magma vann Evrópukeppnina árið 2014 fyrir minjagrip úr hrauni.
Skólarnir sem taka þátt í átakinu í ár eru Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Verslunarskóli Íslands, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Menntaskólinn við Sund, Menntaskólinn í Kópavogi, Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum og Menntaskólinn við Hamrahlíð.
Junior Achievement (JA) eru alþjóðleg félagasamtök sem starfa á heimsvísu en verkefni á vegum samtakanna snerta meira en tíu milljónir nemenda á ári hverju í 122 löndum, þar af 3 milljónir nemenda í 39 Evrópulöndum. Samtökin leitast við að undirbúa ungt fólk fyrir framtíðina og auka færni þeirra til atvinnuþátttöku og atvinnusköpunar með því að stuðla að aukinni nýsköpunar-, frumkvöðla- og viðskiptamenntun í skólum. JA á Íslandi er þátttakandi í JA á heimsvísu.
Nýlega var skipuð ný stjórn Junior Achievement á Íslandi og er stjórnin skipuð eftirfarandi stjórnarmönnum:
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar (stjórnarformaður)
Höskuldur H. �?lafsson, bankastjóri Arion banka
Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips
�?orsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
�?orgerður Katrín Gunnarsdóttir, forstöðumaður mennta- og nýsköpunarsviðs Samtaka atvinnulífsins
�?orsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík
�?ór Sigfússon, forstjóri Sjávarklasans
Sigríður Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður menntamálaráðherra
Petra Bragadóttir, kennari við Fjölbrautaskólann í Ármúla
Nánari upplýsingar veitir Minna Melleri, framkvæmdastjóri Junior Achievement, minna@jaeurope.org,
s: 8554483. Facebook: JA Iceland – Ungir frumkvödlar. Twitter: @JA_Iceland.
Aðilar að Junior Achievement á Íslandi:

Nýjustu fréttir

Margrét aðstoðar Miðflokkinn
Herrakvöld fótboltans
Fundur bæjarstjórnar í beinni
Samgöngur og sannindi
Staðan í Landeyjahöfn
Vestmannaeyjahöfn, lífæð samfélagsins
Sæunn Magnúsdóttir er tilbúin í slaginn
ÍBV í úrslit eftir sigur gegn Haukum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.