Meirihluti sjómanna í Verkalýðsfélagi Akraness samþykkti fyrir helgi að hefja undirbúning verkfallsaðgerða, eða tæp 82 prósent. Unnið er að sambærilegum könnunum vítt og breitt um landið til að kanna afstöðu sjómanna til hvaða aðgerða á að grípa en þetta kemur fram á Vísi.is.
Kröfur SFS ósvífnar
Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, segir flest benda til þess að önnur félög samþykki að grípa til aðgerða. Ekkert hafi miðað í samningaviðræðunum, enda séu kröfur Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), með öllu óraunhæfar.
�??�?að var fundað síðast 4. desember þegar það slitnaði upp úr viðræðunum. �?eir [SFS] hafa sagt nei við öllum okkar kröfum. Kröfur þeirra á hendur sjómönnum eru svo háar að það er í raun algjör ósvífni,�?? segir Konráð, en Sjómannafélagið samþykkti á dögunum með rúmlega 90 prósent atkvæða að hefja undirbúningsaðgerðir.
Sjómenn hafa verið samningslausir í um fimm ár. �?eirra helstu kröfur snúa meðal annars að verðlagsmálum á sjávarafurðum, mönnunarmálum um borð – en margir sjómenn telja öryggi og velferð þeirra ógnað vegna fækkunar um borð í uppsjávarskipum, og leiðréttingu vegna afnáms sjómannaafsláttar sem tekinn var af sjómönnum.
�?olinmæðin á þrotum
Konráð segir að um sé að ræða eðlilegar kröfur. �?tgerðarmenn hins vegar neiti að ræða þær. �?olinmæði sjómanna sé því á þrotum. �??Við erum að detta yfir fimm árin án kjarasamnings. Menn eru orðnir þreyttir á því enda er orðið svo langt síðan við höfum fengið viðræður um okkar kjarasamning að núna þarf bara eitthvað að gerast, það er bráðnauðsynlegt,�?? segir hann.
Niðurstaða um hvort undirbúa eigi verkfallsaðgerðir ætti að liggja fyrir um miðjan næsta mánuð. Konráð segist telja líklegt að niðurstöður verði afgerandi. Fari svo, og takist ekki samningar, muni verkfall að öllum líkindum skella á í apríl/maí.
�??�?g ætla að vona að guð gefi það að við þurfum ekki að fara í verkfall. En þessu verður fylgt eftir af fullri hörku til enda ef ekki semst, sem ég ætla að vona að okkur takist. �?g vona að við náum að gera samning og koma honum í atkvæðagreiðslu til sjómanna áður en af því verður.�??
Sextán ár frá síðasta verkfalli
Sextán ár eru frá því að sjómenn fóru síðast í verkfall, en þá voru lög sett á verkfallið og gerðardómur fenginn til að leysa úr því. Konráð segist ekki farinn að hugsa út í það hvort lög verði sett á hugsanlegt verkfall. Hins vegar sé ljóst að það muni hafa umtalsverð áhrif.
Lesa má fréttina í heild
hér.