Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í morgun ríkið af kröfu Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum um endurgreiðslu á sérstöku veiðigjaldi sem lagt var á sjávarútvegsfyrirtæki á fiskveiðiárinu 2012-2013. �?etta staðfestir Ragnar H. Hall, lögmaður Vinnslustöðvarinnar, í samtali við mbl.is en fyrirtækið hafði farið fram á endurgreiðslu upp á rúmlega hálfan milljarð króna. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvort dómnum verði áfrýjað til Hæstaréttar.
�??Menn fara bara yfir forsendurnar í svona dómi og taka síðan ákvörðun út frá því. �?að er engin fyrirfram afstaða til þess,�?? segir Ragnar.
Vinnslustöðin telur að sérstaka veiðigjaldið hafi í raun verið eignarskattur sem lagður hafi verið á veiðiheimildir sem varðar væru af eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar. Gjaldstofninn, svokölluð renta, væri hins vegar ekki tengdur ætluðu verðmæti veiðiheimildanna heldur væri gjaldið fyrir fiskveiðiárið 2012/�??2013 reiknað út frá rekstrarniðurstöðum ársins 2010. �?etta þýði í raun að verið sé að skattleggja rekstur fyrirtækisins afturvirkt sem sé óheimilt samkvæmt stjórnarskránni.