Ríkið sýknað af kröfu Vinnslu­stöðvar­inn­ar
Héraðsdóm­ur Reykja­vík­ur sýknaði í morg­un ríkið af kröfu Vinnslu­stöðvar­inn­ar í Vest­manna­eyj­um um end­ur­greiðslu á sér­stöku veiðigjaldi sem lagt var á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki á fisk­veiðiár­inu 2012-2013. �?etta staðfest­ir Ragn­ar H. Hall, lögmaður Vinnslu­stöðvar­inn­ar, í sam­tali við mbl.is en fyr­ir­tækið hafði farið fram á end­ur­greiðslu upp á rúm­lega hálf­an millj­arð króna. Ekki hef­ur verið tek­in ákvörðun um það hvort dómn­um verði áfrýjað til Hæsta­rétt­ar.
�??Menn fara bara yfir for­send­urn­ar í svona dómi og taka síðan ákvörðun út frá því. �?að er eng­in fyr­ir­fram afstaða til þess,�?? seg­ir Ragn­ar.
Vinnslu­stöðin tel­ur að sér­staka veiðigjaldið hafi í raun verið eign­ar­skatt­ur sem lagður hafi verið á veiðiheim­ild­ir sem varðar væru af eign­ar­rétt­ar­á­kvæði stjórn­ar­skrár­inn­ar. Gjald­stofn­inn, svo­kölluð renta, væri hins veg­ar ekki tengd­ur ætluðu verðmæti veiðiheim­ild­anna held­ur væri gjaldið fyr­ir fisk­veiðiárið 2012/�??2013 reiknað út frá rekstr­arniður­stöðum árs­ins 2010. �?etta þýði í raun að verið sé að skatt­leggja rekst­ur fyr­ir­tæk­is­ins aft­ur­virkt sem sé óheim­ilt sam­kvæmt stjórn­ar­skránni.
mbl.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Staðan í Landeyjahöfn
Vestmannaeyjahöfn, lífæð samfélagsins
Sæunn Magnúsdóttir er tilbúin í slaginn
ÍBV í úrslit eftir sigur gegn Haukum
Erfið staða í Land­eyja­höfn
Tvær flugferðir á dag á meðan beðið er opnunar Landeyjahafnar
Hinkrum við, vöndum okkur betur
ÍBV mætir Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.