ÍBV tók á móti HK í 16-liða úrslitum Coca Cola bikarkeppni karla í kvöld þar sem ÍBV hafði betur 37-25. Bikarmeistararnir eru því komnir í 8-liða úrslit þar sem þeir mæta Val.
HK var aldrei nein fyrirstaða fyrir ÍBV enda var ekki búist við því. Staðan var 6:6 en fljótlega breytti ÍBV stöðunni í 17:7, í hálfleik var staðan síðan 19:9. Sigurinn var aldrei í hættu og lokatölur 27-25. Eyjamenn vinna því fyrsta leikinn sinn eftir EM-pásuna og það gefur vonandi góð fyrirheit fyrir restina af tímabilinu.
Mörk ÍBV skoruðu þeir; Thedór Sigurbjörnsson 13, Einar Sverrisson 6, Grétar �?ór Eyþórsson 6, Andri Heimir Friðriksson 4, Bergvin Haraldsson 2, Magnús Stefánsson 2, Kári Kristján Kristjánsson 1 og Svanur Páll Vilhjálmsson 1.