Holdgervingur einstaklingsframtaksins í Vestmannaeyjum er öðrum fremur Georg Eiður Arnarsson, útgerðarmaður á Blíðu VE með meiru. �?að var ekki mulið undir hann í uppvextinum og snemma byrjaði hann að vinna. Í bráðum 30 ár hefur hann gert út smábát með misjöfnum árangri en það er hans lifibrauð og fjölskyldunnar. Hann er afkasta mikill bloggari sem liggur ekki á skoðunum sínum, er á móti kvótakerfinu og varaði strax við því að Landeyjahöfn yrði aldrei heilsárshöfn. Lét sig ekki muna um að hjóla í sérfræðinga sem vildu minni veiðar á lunda og um jólin tókst honum að vekja sjálfstæðismenn af dvalanum þegar hann talaði um hjörð bæjarstjórans í grein sinni. Hann hefur verið á kantinum í pólitíkinni og tó sjötta sætið á Eyjalistanum í síðustu bæjarstjórnarkosningunum. Nú er hann komin í þriðja sætiið og situr í framkvæmdar- og hafnarráði og ætlar sér ekki að sitja með hendur í skauti. En það er við ramman reipi að draga því allt sem hann ber á borð er barið niður með látum. Georg varð snemma að bjarga sér og kann best við sig sem eigin húsbóndi og því valdi hann að fara í útgerð á smábátum.
Allt þetta og miklu fleira ræddi hann við blaðamann í nýasta tölublaði Eyjafrétta.