Grindavík gefur Abel sektarsjóðinn - Skora á önnur félög
ÍBV hefur hafið fjársöfnun fyrir markvörðinn Abel Dhaira. Abel var skorinn upp í �?ganda fyrir áramót vegna krabbameins í kviðarholi sem nú hefur dreift sér í fleiri líffæri. Abel mun hefja læknismeðferð hér á landi í næstu viku.
�?eir sem vilja taka þátt í söfnuninni geta hringt í neðangreind númer eða lagt beint inn á söfnunarreikning 582-14-602628 kt. 680197-2029.
9071010 �?? 1000kr
9071020 �?? 2000kr
9071030 �?? 3000kr
Grindavík hefur ákveðið að gefa sektarsjóð sinn í söfnunina fyrir Abel og skora á önnur félög að gera slíkt hið sama eins og sjá má hér að neðan.
Yfirlýsing frá Grindavík
Á dögunum gáfu Eyjamenn það út að hinn öflugi markvörður þeirra Abel Dhaira yrði ekki með næsta sumar vegna alvarlegra veikinda, sem reynist vera krabbamein.
�?að lýsir Eyjamönnum hvað best að þeir fluttu Abel veikan til Íslands frá �?ganda til að geta staðið með honum og útvegað honum bestu mögulegu læknisþjónustu í þessum erfiðu veikindum. �?eir sýna þarna hvaða mann þeir hafa að geyma.
Nú hafa þeir sett af stað söfnun til að létta Abel þá fjárhagslegu byrði sem svona erfiður sjúkdómur orsakar. Framundan er stærsta og mikilvægasta barátta Abels sem hann þarf að berjast í fjarri heimahögum.
Nú gefst okkur sem stundum knattspyrnu á Íslandi frábært tækifæri til að styðja góðan dreng í þessari baráttu. Við getum sýnt að þegar að á reynir stöndum við saman og erum öll í sama liði.
Okkur í meistaraflokki Grindavíkur langar að styðja Abel og vini okkar í Vestmannaeyjum sem standa fyrir þessu frábæra framtaki og leggja inn á reikning þeirra sektarsjóð okkar. �?ar sem að sjóðurinn okkar er nú ekki í hæstu hæðum bættu allir sem koma að meistaraflokknum 1500 krónum í hann.
�?að er ekki meining okkar að auglýsa einhvern smástyrk frá okkur heldur leggja til að öll meistaraflokks lið á Íslandi geri hið sama. �?annig gæti safnast smá upphæð sem kæmi sér vel fyrir Abel.
Með von um góð viðbrögð
Meistaraflokkur Grindavíkur.

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.