Slys um borð í Jóni Vídalín VE
Liðin vika var með rólegra móti hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum og engin teljandi útköll vegna ölvunar.
Eitt fíkniefnamál kom upp í liðinni viku en við leit lögreglu hjá karlmanni um þrítugt fannst lítisháttar af kannabisefnum. Málið telst upplýst.
Fjórar kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum eftir liðna viku en um er að ræða þrjár kærur vegna vanrækslu á að nota öryggisbelti í akstri og eina kæru vegna áreksturs þar sem sá er tjóninu olli stakk af án þess að tilkynna um óhappið. Atvikið mun hafa átt sér stað fyrir utan Strandveg 39 um hádegið þann 9. febrúar sl. �?eir sem einhverjar upplýsingar hafa um hver þarna var að verki eru vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglu.
�?rjú umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu í vikunni en engin alvarleg slys urðu í þessum óhöppum og lítið tjón á ökutækjum.
�?ann 9. febrúar sl. var lögreglu tilkynnt um slys um borð í Jóni Vídalín VE en þarna hafði skipverji slasast á fæti þegar togvír slóst í hægri fót hans. Skipverjinn var fluttur á heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum. Ekki liggur fyrir hversu alvarlegur áverkinn var.

Nýjustu fréttir

Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Útför: Einar Birgir Sigurjónsson
Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.