Meðalverðið á Íslandsloðnu tæpar 62 krónur á kíló
Norski loðnubáturinn Endre Dyroy landar á Fáskrúðsfirði. (Mynd: �?ðinn Magnason)
Norsk loðnuskip hafa landað rúmum fjórðungi afla síns í íslenskum höfnum, en þetta kemur fram á vef fiskifrétta.
Norsk skip hafa veitt um 44 þúsund tonn af loðnu við Ísland af rúmlega 58 þúsund tonna kvóta. Rúmum fjórðungi aflans hefur verið landað á Íslandi.
Norska síldarsamlagið heldur utan um ráðstöfun og sölu Íslandsloðnunnar. Nú þegar hafa verið skráð 25.311 tonn af loðnu í sölukerfi samlagsins. Um er að ræða landanir bæði í Noregi og á Íslandi. �?llum aflanum hefur verið landað til manneldisvinnslu. Aflaverðmætið er rúmar 105 þúsund krónur norskar, eða tæpir 1,6 milljarðar íslenskir. Meðalverðið er 4,15 krónur norskar á kílóið eða 61,59 íslenskar.
Ekki liggur fyrir nákvæm skipting milli þess hvað greitt er fyrir loðnuna í Noregi annars vegar og á Íslandi hins vegar í ár. Samkvæmt upplýsingum sem Fiskifréttir fengu frá norska síldarsamlagin er verðið eitthvað hærra í Noregi en á Íslandi.

Nýjustu fréttir

Nóg að gera og skemmtilegt bæði í vinnunni og skólanum 
Gígja og Leifur tóku heimilið í gegn   
Yfir tvær milljónir umbúða fara árlega í gegnum móttökuna í Eyjum
Tvöfaldur handboltadagur í Íþróttamiðstöðinni
Leggja til lækkun fasteignaskatts
ÍBV hafði betur í sjö marka leik gegn bikarmeisturunum
Nýir eigendur taka við Kránni
Undirbúa starfslok hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.