Körfuknattleikslið ÍBV hafði á ný betur gegn Álftanesi í seinni leik liðanna í gær en lokatölur urðu 84:76. Þótt leikurinn hafi farið fram í Eyjum, fór hann ekki fram á hinum hefðbundna heimavelli Eyjamanna því í upphitun gerðist það að einn leikmanna ÍBV tróð með slíkum tilþrifum að körfuboltaspjaldið brotnaði. Svo skemmtilega vildi til að sá hinn sami er forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar og spurning hvort hann verði settur í straff vegna skemmdaverka.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst