Þrír Eyjapeyjar, þeir Alexander Jarl Þorsteinsson, Jóhann Rafn Rafnsson og Pálmi Geir Jónsson hafa verið valdir í 28 manna æfingahóp U16 ára landsliðs Íslands í körfuknattleik. Landsliðið mun taka þátt í Norðurlandamótinu í Svíþjóð á næsta ári en mun æfa milli jóla og nýárs. Aðeins þrjú félög eru með fleiri leikmenn en ÍBV á æfingunum, Breiðablik er með sex leikmenn og Suðurnesjaliðin Keflavík og Njarðvík með fjóra hvort.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst