Björgunarskipinu Ingibjörgu, sem staðsett er á Höfn í Hornafirði, var stolið í morgun. Skipinu var hins vegar siglt aftur til hafnar eftir að það hafði fengið á sig brot. Um borð var einstaklingur sem er að öllum líkindum búinn að dvelja þar frá því á þriðjudag. Hann virðist á þeim tíma hafa lesið sér til um virkni skipsins í bókum um borð í skipinu og að lokum ákveðið að sigla úr höfn.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst