Svo virðist sem mikil frjósemi sé um þessar mundir í Vestmannaeyingum. Fyrstu börn ársins fæddust 2. janúar. Það voru þríburar, sem fengið hafa nöfnin Adrian, Ela og Agata. Foreldrar þeirra eru pólskir, Ursula Voniewska og Piotr Roguski og hafa búið í Eyjum í þrjú ár. Þá fæddust tvíburar 27. janúar. Foreldrar þeirra eru Drífa Þöll Arnardóttir og Gunnlaugur Erlendsson .
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst