Ekkert fast í hendi með hvað tekur við

Heimir Hallgrímsson er mikið milli tannanna á fólki á flestum kaffistofum bæjarins þessa stundina. Hvað skildi taka við hjá honum? Í viðtali við mbl.is í hádeginu í dag þriðjudag sagðist Heimir helst horfa til enskumælandi landa. „Já, ef ég ætti að fara í dag yrði það að vera ensku­mæl­andi land. Auðvitað er margt spenn­andi í heim­in­um, ég hef kynnst því und­an­far­in ár hvað fót­bolta­heim­ur­inn er risa­stór, og það eru mikl­ar fram­far­ir í öðrum lönd­um en við erum van­ir að horfa til.” 

Þá sagðist hann spenntari fyrir því að þjálfa félagslið frekar en landslið. „ Já, það leiðin­lega við að vera landsliðsþjálf­ari er að þú ert lítið úti á gras­inu. Hérna heima hef ég getað brotið það upp með því að fara í knatt­spyrnu­skóla og aka­demí­ur úti á landi, tekið æf­ing­ar hér og þar, en það er ekk­ert sem þjálf­ara lang­ar meira til að gera en að vera úti á gras­inu og þjálfa.

Það væri spenn­andi að fara aft­ur í það um­hverfi að þjálfa félagslið. Gott landslið er líka spenn­andi en það myndi ekki metta ákveðna þörf sem ég hef akkúrat núna.”

Í sama viðtali á mbl.is sagði Heimir ekkert fast í hendi en einhverjar fyrirspurnir hafa borist. „Það hafa svo sem komið ein­hverj­ar fyr­ir­spurn­ir sem ger­ir ekk­ert fyr­ir mig og hafði ekki áhrif á þessa niður­stöðu og þessa ákvörðun mína um að hætta með landsliðið. En samt gef­ur það mér kannski von um að það bjóðist ein­hvern tíma seinna eitt­hvað skemmti­legt starf.

Þetta er auðvitað ekki besti tím­inn fyr­ir þjálf­ara til að vera laus, nú eru öll tíma­bil byrjuð alls staðar og all­ir bún­ir að ráða sér þjálf­ara.”

Nýjustu fréttir

Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.