Karla- og konukvöld knattspyrnudeildar ÍBV verður haldið laugardaginn 23. apríl næstkomandi í Höllinni og á Háaloftinu í Vestmannaeyjum. Eyjólfur Kristjánsson og Hálft í hvoru skemmtir og leikur fyrir dansi, lið sumarsins verður kynnt og Einsi Kaldi býður upp á glæsilegan mat að vanda. Miðaverð er 7500 krónur. Kynjaskipt eftir hæðum fyrri part kvölds en kynin sameinast svo á dansleik með Hál í hvoru í Höllinni að lokinni skemmtun. Nánari dagskrá auglýst í næstu viku. Miðasala og skráning í Týsheimilin og hjá oskar@ibv.is