ÍBV áfram í Borgunarbikarnum eftir sigur á Stjörnunni
ÍBV tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Borgunarbikarsins með 2-0 sigri gegn Stjörnunni í Garðabæ í kvöld. En www.fotbolti.net greindi frá.
Leikurinn var ansi líflegur og skemmtilegur og nóg um færi á báða bóga, sérstaklega í fyrri hálfleik. �?að var Pablo Punyed sem kom ÍBV í 1-0 á 17. mínútu með þrumuskoti á sínum gamla heimavelli. �?rátt fyrir mörg færi voru ekki skoruð fleiri mörk í fyrri hálfleik.
Eyjamenn fengu sannkallaða draumabyrjun á seinni hálfleik, en eftir innan við fimm mínútur hafði Bjarni Gunnarsson fylgt eftir stangaskoti í netið. Staðan orðin 2-0 og brekkan brött fyrir Stjörnumenn.
Stjarnan hefði sannarlega getað minnkað muninn í nokkur skipti, en Derby Carriloberduo var frábær í marki Eyjamanna og varði oft á tíðum meistaralega. Lokatölur 2-0 og Bjarni Jóhannsson skilur sína gömlu lærisveina eftir í sárum.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.