Í dag eru ekki nema 36 dagar í �?jóðhátíð Vestmannaeyja og því vel við hæfi að frumflytja �?jóðhátíðarlag Vestmannaeyja í dag. Lagið heitir �??Ástin á sér stað�?? og er samið af Halldóri Gunnari Pálssyni. Söngvarar eru þeir Friðrik Dór Jónsson og Sverrir Bergmann Magnússon og textasmíð var í höndum Magnúsar �?ór S Sigmundssonar. Hljómsveitin Albatross sér um hljóðfæraleik í laginu. Er hér um að ræða annað þjóðhátíðarlag þeirra Halldórs og Magnúsar, en þeir sömdu einnig saman lagið �??�?ar sem hjartað slær�??, þjóðhátíðarlag Vestmannaeyja árið 2012. Lagið og textinn er innblásið af 40 ára ástarsögu úr Eyjum og af öllum þeim sem orðið hafa ástfangnir á þjóðhátíð, hvort sem það er af lífinu, fólkinu eða stemmningunni. Ástin á sér stað í Herjólfsdal. Myndband við lagið verður gefið út samhliða og er það leikstýrt af Davíð Arnari Oddgeirssyni hjá Mint Production.