Grafalvarlegar afleiðingar og stefnir almannaheill í voða
Á fundi sínum í dag ítrekaði bæjarráð Vestmannaeyja þá afstöðu sína sem ítrekað hefur komið fram um mikilvægi sjúkraflugs og aðstöðu því tengdu í Reykjavík enda hafi Reykjavíkurflugvöllur ávallt gegnt mikilvægu hlutverki í samgöngumálum þjóðarinnar og skapað betra aðgengi að hátæknisjúkrahúsum.
Sérstaklega er hörmuð sú ákvörðun borgarstjórnar Reykjavíkur að loka eigi NA/SV flugbraut á Reykjavíkurflugvelli, svokallaðri neyðarbraut. Sú ákvörðun muni hafa grafalvarlegar afleiðingar og stefni almannaheill í voða.
�??�?llum má ljóst vera að lending á neyðarbrautinni hefur skipt sköpum varðandi sjúkraflug utan af landi, oft í erfiðum tilfellum þar sem um líf eða dauða er að tefla. Lokun á neyðarbrautinni er því ekki eingöngu skerðing á þjónustu við íbúa landsins heldur er með henni vegið að öryggi þess hluta landsmanna sem býr og starfar utan höfuðborgarsvæðisins.
Bæjarráð gerir þá kröfu að stjórnvöld bæði hjá ríki og sveitarfélögum sýni því skilning að málefni flugvallarins í Reykjavík er ekki einkamál Borgarstjórnar Reykjavíkur. Flugvöllurinn í Vatnsmýrinni er eitt mikilvægasta samgöngumannvirki þjóðarinnar sem viðhaldið er með almannafé til handa öllum íbúum þessa lands,�?? segir í ályktun bæjarráðs.

Nýjustu fréttir

34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.