�?jóðhátíð 2016 | Fagaðilar vilja upplýsa um kynferðisbrot
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum segir verkferla í kringum tilkynningar um kynferðis­afbrot vera þá sömu á �?jóðhátíð og aðra daga ársins. �?ví muni lögreglan í Vestmannaeyjum ekki upplýsa fjölmiðla jafnóðum um tilkynnt kynferðisbrot. �?að er sama stefna og var sett í fyrra, sem var afar umdeild. Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri segir þetta gert til að vernda brotaþola frá ytra álagi og auka líkur á góðri frásögn. �??Síðar þegar það er tímabært og skaðar ekki rannsóknarhagsmuni er eðlilegt að upplýsa um fjölda tilkynntra mála en eigi að vera mark takandi á slíkum upplýsingum þarf tíminn að fá að líða,�?? stendur í svari Páleyjar við fyrirspurn Fréttablaðsins. Hún tekur aftur á móti ekki fram hversu margir dagar þurfi að líða.
Páley hafði samband við Neyðarmóttöku Landspítalans á dögunum og bað um að sama verklag yrði viðhaft þar. Hrönn Stefánsdóttir, verkefnastjóri Neyðarmóttökunnar, segir stefnu spítalans vera þá að svara fyrirspurnum fjölmiðla og upplýsa um fjölda mála, skiptir þá ekki hvers eðlis málið er. �?ví verði ekki orðið við beiðni lögreglustjórans.
Visir.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.