Að gefnu tilefni vil ég undirrituð ítreka eftirfarandi:
Lögreglan í Vestmannaeyjum miðlar öllum upplýsingum um verkefni sín svo hratt og örugglega sem mögulegt er hverju sinni. Sama verklag er haft allt árið og tekur það eingöngu mið af rannsóknarhagsmunum og velferð mögulegra fórnarlamba. Um komandi Verslunarmannahelgi verða allar upplýsingar veittar um leið og talið er að það skaði hvorki rannsóknarhagsmuni né velferð brotaþola. Undir þetta falla upplýsingar um fjölda brota, eðli þeirra og allar aðrar þær upplýsingar sem almennt eru veittar.
Umræða um að leyna eigi upplýsingum um kynferðisbrot eða draga úr hófi að veita þær eru með öllu á misskilningi eða vanþekkingu byggð. �?vert á móti verða allar upplýsingar veittar svo fljótt sem verða má þegar búið er að tryggja velferð fórnarlamba og rannsóknarhagsmuni.
Páley Borgþórsdóttir
Lögreglustjóri í Vestmannaeyjum
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst